Toppari eða tímastjórn

Veist þú hvort þú ert toppari eða yfir höfuð hvað toppari er?  Toppari er hvorki dúfa né skarfur.  Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað toppari er skal ég útskýra það sem snöggvast.   Toppari er manneskja sem alltaf þarf að toppa allt sem þú segir og hefur ávallt séð það svartara. Topparar eru flestir svo ótrúlega leiðinleg mannkvikindi að allir elska að hata þá.  Jafnvel þessir sniðugu eru leiðinlegir til lengdar. 

Segir þú toppara veiðisögu á hann alltaf eina aðeins betri.  Hann veiðri fleiri dýr en þú,  á stærri bíl, flottari gítar, hefur ferðast meira og á meiri peninga en þú.  Ef ekki hann sjálfur, þá einhver vinur hans.  Það er svo merkilegt með toppara að þeir toppa bæði gott og slæmt.  Hafa verið veikari en þú, lent í verri lífsháska, verið dónalegri og tapað stærri upphæðum.  Voru með verri kennara og voru óþekkari í skóla.  Er ekki viss hvort þetta með óþekktina á frekar heima í góðu eða slæmu.

Ég reyni stundum að vera toppari en hef ekki nægilegt úthald til að ná töktunum alveg.  Verð þá frekar pirrandi en hefur enn ekki tekist að fá neinn til að elska að hata mig.  Kannski ætti ég að fara á námskeið í toppun mig langar í það minnsta meira á námskeið í toppun en í tímastjórnun þó ég vita að hið mig skortir meira af hinu síðarnefnda en hinu.


Bloggfærslur 9. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband