10.12.2010 | 16:04
Það er hægt að rokka, hjóla, skipta um dekk og fara á veiðar í þjóðbúningi
Félagar í Þjóðbúningafélagi Vestfjarða sjá spaugilegu hliðina á tilverunni og hafa gefið út dagatal með myndum af fólki í Íslenskum þjóðbúningum. Það er markmið félagsins að vekja áhuga fólks á þjóðbúningnum og hvetja sem flesta til að eignast slíkan búning og nota hann við sem flest tækifæri.
Rúna þeysir um miðbæinn á Ísafirði
Friðgerður og Þosteinn njóta ökuferðarinnar í Dýrafirðinum
Muggi hafnarstjóri, Helga, Heiðdís og Sunna taka æfingu fyrir Aldrei fór ég suður.
Auður Kolbrún og Matthildur ætla að sækja jólamatinn
Dagatalið kostar einungis kr.2 .500 áhugasamir sendi póst á faldur@snerpa.is
Athugasemdir
Aldeilis skemmtilegt. Er alveg til í svona.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2010 kl. 14:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.