29.11.2007 | 11:31
Húsþök og hárlitur
Ég á ameríska vinkonu sem kemur stundum til Íslands til lengri eða skemmri dvalar. Það er alltaf gaman að fá hana í heimsókn og við ræðum margt og mikið, ekki síst um mismuninn á Evrópu og Bandaríkjunum, hvað er líkt og hvað ólíkt. Og þó ég hafi ekki beint spurt hana stóru spurningarinnar "how do you like Iceland" get ég ekki neitað að ég er oft að leita eftir hennar skoðun á okkur íslendingum og Íslandi. Okkur er ekki sjálfrátt.
Eitt af því sem hún benti mér á var hvað það væri gaman að sjá að húsþökin á Íslandi í mörgum litum, það væri ekki einn ríkjandi litur eins og víða. Hún taldi þetta vera merki um hvað við erum sjálfstæð og örugg með okkur. Auðvitað neitaði ég því ekki. Ég hafði annars aldrei spáð í þetta og veit ekki hvort vísindalegar rannsóknir liggja, en glöggt er gests augað.
Annað sem henni var tíðrætt um var að allir íslendingar væru með litað hár. Þarna notaði hún orðið allir væntanlega í sama skilningi og unglingar gera gjarnan. Því er ekki að neita að mjög margir eru með litað hár eða strípur. En þetta hefur líklega ekki heldur verið rannsakað. Vinkona mín í hárgreiðslubransanum hefur þó sagt mér að hárlitun sé algengari á Íslandi en mörgum nágrannalöndum okkar.
Það sem ég var að velta fyrir mér, að því gefnu að þessar tvær fullyrðingar séu sannar, er hvort samhengi sé þarna á milli. Kannski ekki beint samhengi en það sé sami krafturinn eða hugsunarhátturinn sem fær okkur til að mála litrík þök og skipta um háralit.
Kannski við höfum rambað á nýja fræðigrein. Ég sé fyrir mér sjálfhjálpar námskeið í því hvernig þú lærir að þekkja sjálfa þig með því að skoða hárgreiðslusögu þína. Mín yrði litrík, það er víst. Hvað þá með þökin? Hún Ásthildur býr í kúluhúsi með gler og torfþaki, hvað myndi það segja um hana?
Athugasemdir
Að ég væri álfur í hól náttúrulega
Annars er fleira áhugavert í sambandi við útlit húsa. Hér kom skoskur arkitekt einu sinni, hann dáðist mjög að því hvað hvert og eitt hús væri sérstakt, hann sagði að í Bretlandi yrðu öll hús í sömu götu að vera eins. Hann sagðist öfunda íslenska arkitekta af því frálsræði sem þeir hefðu í að teikna hús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2007 kl. 13:44
Bretar eru með öll húsin eins í götunni en útidyrahuðirnar eru í mismunandi litum. Það er víst til þess að menn rati heim til sín þegar þeir koma af pöbbnum.
Gló Magnaða, 29.11.2007 kl. 17:53
Valgerður Halldórsdóttir, 30.11.2007 kl. 00:14
Ásthildur er í kúluhúsi af því að hún hugsar út fyrir kassann. :)
Ég hins vegar byggði mér venjulegt hús með hallandi þaki af því að ég er svo praktísk. Fer ekki út fyrir kassann að neinu leyti.
Ég ekki með litað hár... í bili. Gæti orðið breyting þar á því vinkonur mínar bentu mér á að ég væri að verða rauðhærð (mömmu að kenna...).
Og ég á eftir að velja lit á þakið! Kannski ég setji bara appelsínugult eins og gluggarnir urðu... óvart! Þá erum við líka í stíl, hausinn á mér og þakið.
Þórdís Einarsdóttir, 30.11.2007 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.