Dráttur óskast, fyrir tíu þúsund.

Sumir nota bloggið sitt til að auglýsa.  Það er eðlilegt, ýmist eru bloggarar að selja hunda, bækur, hús eða jafnvel að vekja athygli á skemmtunum. Vitanlega eru auglýsingarnar mis áhugaverðar eins og gengur. Ég rakst á eina skemmtilega auglýsingu hjá henni Ylfu Mist áðan og get ekki stillt mig um að setja hana hérna inn.

Þar er hún að auglýsa eftir drætti á hjólhýsi og heimili fyrir hvolpa, með þessum orðum 

"til sölu er tíuþúsundkall fyrir drátt og slatti af hvolpum.  Allt í sama númeri"

Það er ekki hægt annað en hafa gaman að þessu og vonandi fær hún drátt og hvolparnir heimili.  Auglýsingin hér að neðan varð á vegi mínum í henni stóru Ameríku á dögunum, þar er allt til.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Mér finnst mín betri en sú ammríska! Til hamingju með módelstarfann!

Ylfa Mist Helgadóttir, 3.6.2008 kl. 07:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband