10.10.2008 | 16:24
Geðveiki dagurinn
Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Í tilefni af því langar mig að hvetja alla þá sem telja sig vera haldna geðheilbrigði af einhverju tagi að gera eitthvað geðveikt. Það jafnast ekkert á við gera eitthvað skrítið og heimskulegt ef maður hefur gilda afsökun. Í dag höfum við góða og gilda afsökun. Í dag mega allir vera geðveikt eitthvað.
Í tilefni dagsins ætla ég að segja ykkur frá konu sem hagaði sér geðveikt asnalega. Hún byrjaði daginn með því að fara í líkamsrækt, hjólaði aftur á bak í spinning og valhoppaði á hlaupabrettinu. Til að tryggja sér athygli allra á stöðinni, sem fær einning að njóta nafnleyndar, mætti hún í íþróttabuxunum á röngunni svo skein í hvíta klofbótina. Því næst bakkaði hún í vinnuna enda einstefna og mikilvægt að bíllinn snéri rétt ef löggan kæmi. Í vinnunni lék hún heilbrigða manneskju af mikilli innlifun og fara engar sögur af því. Geðveikar konur þurfa að borða eins og aðrar konur og því skrapp hún út í búð. Henni virtist dagurinn vera gulur, því keypti hún banana, gul epli, sítrónu, léttmjólk, sinnep, pasta og ost. Matur í öðrum lit vakti ekki áhuga hennar enda algjört stílbrot að kaupa jarðarber á gulum degi.
Athugasemdir
Þú lífgar upp minn geðveika dag :D
Gústi (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 16:33
En hvað gerir maður ef maður hefur ekki af geðheilbrigðinu að státa?? Svona í tilefni dagsins? Lætur eins og geðheilbrigður?
Ylfa Mist Helgadóttir, 10.10.2008 kl. 16:54
Og eigum við að fara saman í ræktina í fyrramál ? til að ná geðinu aftur ? og af okkur sítrónunni ? og sinnepinu ?
gunna (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 20:36
Það vill svo skemmtilega til að á miðvikudaginn varð ég geðheilbrigð (nokkurn veginn) og gat því leyft mér að vera geðveik í gær (fara á kaffihús með þér m.a.).
Hjördís Þráinsdóttir, 11.10.2008 kl. 21:10
Já það var geðveikt gaman hjá okkur, sokkur.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 13.10.2008 kl. 09:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.